Þýskaland — „Off the Back“: haldið í eldri starfsmenn í litlu þakfyrirtæki

Lykilorð:

Þakfyrirtæki Plankers greið til aðgerða til að fyrirbyggja stoðkerfisraskanir starfsmanna í samstarfi við háskóla nytjavísinda í Neiderrhein, með það að markmiði að lengja starfsaldur. Í kjölfar sex mánaða greiningar rannsakenda háskólans á virkni á vinnustað Plenkers var komið auga á aðgerðir til að draga úr erfiðisvinnu. Þar á meðal voru færarnleg lyftingartæki, flutningstæki og notkun hnépúða. Starfsmenn fengu einnig grunnþjálfun í skrifstofustörfum, sem gerði starfsmönnum kleift að gangast í léttari störf eftir þörfum. Á meðal árangursþátta voru samræmt eftirlit eiganda fyrirtækisins og ráðgjöf utanaðkomandi sérfræðinga. Breyting á hegðun starfsmanna var stærsta áskorunin. Grípa má til svipaðra aðgerða á hvaða vinnustað sem er þar sem störf krefjast líkamlegs erfiðis. Þrátt fyrir að auðveldlega megi þjálfa starfsmenn í skrifstofustörfum gæti reynst erfitt að bjóða upp á flutning í önnur störf í fyrirtækjum með fastmótaðra skipulag.

Sækja in: en