Frakkland — PSA Peugeot Citroën: skrásetning vinnustaðar til að bæta starfsmannahald
09/03/2016
PSA Peugeot Citroën er bílaframleiðandi með 118.080 starfsmenn í vinnu. Þar af eru 29% eldri en 50 ára og hafa eldri framleiðslustarfsmenn takmarkaða starfsgetu. Árið 2009 skylduðu frönsk lög fyrirtækið til að vinna með aðilum vinnumarkaðarins til að hvetja til ráðningu eldri starfsmanna. Peugeot kom á sex verkefnum sem voru í samræmi við sex forgangsatriði ríkisstjórnarinnar og var það veigamesta að skrásetja og flokka allt vinnusvæðið í „erfið“, „í meðallagi“ og „létt“ störf. Til að ná fram markmiði um 58% létt störf var handstjórnun minnkuð, verkefnum endurúthlutað eftir líkamlegri getu og víxlun á vinnu komið á. Hæfni starfsmanna var metin til að bæta starfsframastjórnun, sem er í endurskoðun til að bæta mat á þörfum tengdum starfsframa. 8% sinna erfiðum störfum, engir af þeim eldri starfsmenn. Samningar eru endurskoðaðir á þriggja ára fresti. Nýlega var „Mission Handicap“ hleypt af stokkunum, sem felur í sér svipaða vernd fyrir fatlaða starfsmenn hjá fyrirtækinu. Á meðal árangursríkra þátta voru sterkur lagalegur grundvöllur, þátttaka aðila vinnumarkaðarins og vægi fyrir alla starfsmenn. Skrásetning vinnustaða er algeng og auðvelt er að yfirfæra hana.