Finnland — samtök um tryggða endurhæfingu (VKK)

Lykilorð:

Rannsóknir sýna að starfsendurhæfing leiðir til marktækrar minnkunar á kostnaði vegna starfstengdra veikinda eða slysa. Í Finnlandi er endurhæfing er hluti af lögbundnum bótum og eru engar bætur greiddar út fyrr en að loknu mati á möguleikum á endurhæfingu. Samtök um tryggða endurhæfingu í Finnlandi, VKK, er milliliður sem metur möguleika einstaklinga á endurhæfingu og býr til starfsendurhæfingaráætlun ef talið er að einstaklingurinn geti snúið aftur til vinnu. Að endurhæfinni lokinni eru kostirnir að snúa aftur í sama starf með aðlögunum, endurþjálfun í nýtt hlutverk eða fjármögnun fyrir vænleg frumkvöðlaverkefni. Fylgst er með einstaklingum í sex mánuði eftir að endurhæfingaráætlun lýkur. Árið 2013 hófu 71% einstaklinga aftur störf að lokinni endurhæfingu. Einstaklingsmiðuð og þverfagleg nálgun VKK var einn af þeim þáttum sem sköpuðu árangurinn. Á meðal áskorana eru síðbúið inngrip (allt að tvö ár getur tekið að þróa áætlun) og skortur á hvata fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki til að taka þátt. Til að endurskapa þetta frumkvæði í öðru aðildarríki þyrfti skilvirkt tilvísunarkerfi, samræmingu og fjármögnun til að ná svipuðum árangri. 

Sækja in: en