E-fact 54: Öruggt viðhald handverkfæra í byggingariðnaði
17/03/2011
Illa viðhaldin handverkfæri á byggingarstöðum (annaðhvort handverkfæri eða aflverkfæri) skapa töluverða hættu gegn heilbrigði og öryggi þeirra starfsmanna sem þau nota. Stöðug umsjón og fullnægjandi viðhald og geymsla er mikilvægt fyrir örugga notkun handverkfæra á byggingarstöðum. Í framkvæmd felst þetta í daglegri sjónskoðun sem miðar að því að greina hugsanleg merki um bilanir. Fullnægjandi þjónusta og viðhald hjálpar til við að koma í veg fyrir / draga úr hættum og áhættum sem tengjast notkun handverkfæra en í viðhaldi handverkfæra felast einnig tilteknar hættur og þarf viðhaldið því að framkvæmast á öruggan hátt. Þetta e-staðreyndablað veitir upplýsingar um hættur og áhættur, sem tengjast handverkfærum á byggingarstöðum, og hvernig stjórna eigi þessum hættum.