E-fact 49: ÖRUGGT VIÐHALD - NÁMUIÐNAÐUR

Námuvinna er einn hættulegasti iðnaður til að starfa í: Námuverkamenn eru tvisvar sinnum líklegri til að láta lífið í vinnuslysi en byggingarverkamenn og 13 sinnum líklegri til að láta lífið í vinnunni en þeir sem vinna við framleiðslu. Notkun stórtækra uppmoksturstækja og véla, meðhöndlun sprengiefna og þungra byrða, viðvarandi svifryk og það eitt að vinna á hættulegum stöðum eru allt hliðar á námuvinnu sem auka hættu á bæði slysum og vinnutengdum sjúkdómum. Hátt hlutfall dauðsfalla í námuiðnaði er tengt viðhaldsvinnu, notkun ökutækja og jarðfastra véla ásamt því að falla úr hæð. Mörg slys eiga sér stað við framkvæmd viðhaldsvinnu og geta þau haft áhrif, ekki einungis á viðhaldsstarfsfólk, heldur einnig annað starfsfólk á staðnum.

Sækja in: bg | cs | da | de | el | en | es | et | fi | fr | hu | is | it | lt | lv | mt | nl | no | pt | ro | sk | sl | sv |