Danmörk — aldrei of gamall/gömul fyrir leikskólann: álagið minnkað til að halda í starfsfólk
09/03/2016
Danski leikskólinn Vuggestuen Kernehuset komst að því að kvillar tengdir beina- og vöðvakerfi (MSD) vegna endurtekinna verkefna jók áhættu á ótímabærum starfslokum á meðal starfsfólksins. Hann ákvað að grípa til ýmissa ráðstafanna, í samstarfi við sveitarfélagið, til að hvetja til heilsueflingar, koma í veg fyrir MSD og halda í eldra starfsfólk. Iðjuþjálfi framkvæmdi starfsgetugreiningu til að greina mögulegar lausnir. Þær fólu meðal annars í sér umhverfisaðlaganir, aðferðir til að bæta jafnvægi vinnu og frítíma og niðurgreiðslu í líkamsrækt. Eldra starfsfólk þjálfaði einnig yngra samstarfsfólk til bættari heilsuvitundar. Sveitarfélagið bauð leikskólastjóranum upp á fræðslu til að gegna hlutverki heilsusendiherra og vekja starfsfólk til umhugsunar um heilbrigði og hvetja til þátttöku í heilsueflingu. Afraksturinn var sjálfbærara starfsumhverfi, færri tilfelli MSD og meiri starfsmannafesta á vinnustaðnum. Á meðal árangursþátta má nefna stuðning frá stéttarfélögum og utanaðkomandi sérfræðingar og fjölbreytileiki í aðferðum sem var beitt. Breytingar á hegðunarmynstri starfsfólks höfðu í för með sér vandamál. Þó svo að þessar aðferðir séu hannaðar sérstaklega fyrir leikskóla þá er hægt að nota þær í öðrum fyrirtækjum.