Danmörk — danska starfsendurhæfingarkerfið

Lykilorð:

Verkefnið setti af stað fyrirbyggjandi, þverfaglegt og samþætt íhlutunarferli til að efla starfsendurhæfingu innan núverandi sjúkrabótakerfis. Það samanstóð af þremur gunnþáttum: þverfaglegum teymum frá sveitarfélögunum; stöðluðu starfshæfnismati og verklagi í tengslum við veikindaleyfi; víðtæku námskeiði í starfsendurhæfingu fyrir teymismeðlimi. Þverfaglegu teymin samanstóðu af fulltrúa sjúkrabóta frá sveitarfélaginu, sjúkraþjálfara, sálfræðingi, lækni með sérhæfingu í almennum, samfélagslegum eða atvinnusjúkdómum og geðlækni. Fulltrúi veikindaleyfa gegndi hlutverki samræmingaraðila. Vikulegir þverfaglegir fundir voru haldnir til að setja saman einstaklingsbundnar áætlanir fyrir starfsendurhæfingu, ásamt eftirfylgnisáætlun til að fylgjast með framþróuninni. Bráðabirgðaniðurstöður voru ólíkar á milli sveitarfélaga. Aftur á móti sýndi kostnaðar- og nytjagreining, í þeim tveimur sveitarfélögum sem sýndu fram á jákvæðar niðurstöður, að verkefnið hafði jákvæð hagræn áhrif. Ánægðir þátttakendur bentu á mikilvægi þess að taka þátt í ákvarðanatöku og myndun trausts innan þverfaglegu teymanna. Vandamálin tengdust óvissu um hlutverk teymismeðlima og takmarkaðri hjálp á vandamálum sem tengjast andlegum kvillum. Gæta skal varúðar við innleiðingu verkefnis af þessu tagi þar sem það þarfnast töluverðrar aðlögunar að sjúkrabótakerfi viðkomandi staðar. 

Sækja in: en