Belgía — prufuverkefni innan velferðarstofnun æskulýðsins: Aðlögun starfsfólks í kjölfar veikindaleyfis

Lykilorð:

Þetta verkefni einblínir á að bæta velferð starfsfólks Youth Welfare Agency sem er komið yfir fimmtugt og var mikið fjarverandi og til lengri tíma í senn. Einstaklingbundar leiðir starfsendurhæfingar voru þróaðar fyrir hvern þátttakanda í samstarfi við viðkomandi starfsfólk, yfirmann þeirra og mannauðsstjórann. Í kjölfar samtals var sett saman ný starfslýsing fyrir alla sex einstaklingana í prufuverkefninu þar sem tekið var sérstakt tillit til heilsustöðu hvers og eins. Á meðal breytinga má nefna afnám vaktavinnu og minni samskipti við þjónustunotendur, en báðir þessir þættir hafa verið skilgreindir sem streituvaldandi þættir í starfinu. Á meðal Árangursþátta má nefna að starfsfólk fann fyrir meiri virðingu og tilgangi í tengslum við starfið (einstaklingsstig) og 48% fækkun veikindaleyfa (fyrirtækjastig). Vandamál komu upp í tengslum við mat á starfsgetu starfsfólks og umfang kerfisbundnar eftirfylgni. Með skýru fimm-þrepa aðferðinni og tilbúnu sniðmátunum má auðveldlega beita þessari aðferð annars staðar. 

Sækja in: en