Belgía — kennsla í „lífsþjálfun“ fyrir starfsfólk í fjölskylduaðstoð
09/03/2016
Service d’Aide aux Familles bruxelloises Asbl eru lítil góðgerðarsamtök sem veita fjölskyldum aðstoð vegna veikinda, skertrar starfsgetu eða í félagslegri neyð. Af öllu starfsfólkinu eru 90% umönnunarstarfsfólk og 45% er yfir 45 ára aldri. Starf þeirra — að hjálpa fjölskyldum á heimilum þeirra — er streituvaldandi, það krefst talsverðrar tæknilegrar færni og það er mikið um veikindaleyfi. Áður fyrr var ekki boðið upp á þjálfun í hópavinnu. Verkefnið „Life Coach“ (sett á laggirnar af forstjóra fyrirtækisins, Maire Arnould) skerpir á hæfni aðstoðarmanneskju fjölskyldu og eflir framþróun í starfi með því að bjóða upp á 10 tveggja daga námskeið í samskipta-, ágreinings- og breytingastjórnun með fagþjálfurum frá Bouche-à-Oreille. Þátttaka er frjáls og ríkisstyrkt. Í umræðuhópum eftir námskeið gefst þátttakendum kostur á að deila reynslu sinni með samstarfsfélögum. Haute-Ecole Paul-Henri Spaak (félagsverkfærideild) klárar síðan matið í samræmi við endurgjöf þátttakenda. Af árangursþáttum má nefna samstarf á milli stjórnar og starfsfólks og áhersla á hæfniseflingu. Verkefnið má yfirfæra á svipaðar fjölþættar þjónustur, sérstaklega ef fjámögnun er til staðar.