Austurríki: Gagnagrunnur yfir sótthreinsunarefni — að skipta út hættulegum vörum á sjúkrahúsum, skólum og öðrum almenningsstöðum
02/11/2019
Tegund:
Raundæmi
3 blaðsíður
Verðlaun fyrir góða starfshætti 2018-2019
Fyrirtæki sem fékk lof
Notkun á sótthreinsunarefnum á almenningsstöðum er nauðsynleg til að takast á við sýkla og koma í veg fyrir útbreiðslu á sýkingum, en þessar vörur innhalda of kemísk efni sem eru skaðleg heilsu manna og umhverfinu. Til að styðja við að mögulega hættulegum sótthreinsunarefnum sé skipt út fyrir öruggari valkosti, hefur Umboðsskrifstofa Vínarborgar fyrir umhverfisvernd (e. Vienna Ombuds Office for Environmental Protection), í samstarfi við nokkrar austurrískar stofnanir, smíðað gagnagrunn á Netinu yfir sótthreinsunarefni, WIDES, sem er tiltækur á bæði þýsku og ensku.
Aðgangur að gagnagrunninum er ókeypis og hann gerir notendum kleift — ekki aðeins í Vínarborg heldur hvar sem er í heiminum — að bera saman á fljótlegan og auðveldan hátt verkun og hættulega eiginleika í yfir 200 sótthreinsunarefnum.
Útgáfa á þessum gagnagrunni hjá Vínarborg og það að hann er notaður við opinbera innkaupaferla hefur leitt til þess að mikið hefur dregið úr notkun á hættulegum efnum á almenningsstöðum í borginni, s.s. á sjúkrahúsum, skólum og dvalarheimilum.