Árið 2014, hleypti EU-OSHA af stað 3ja ára verkefni til að stuðla að því að bæta niðurstöður varðandi vinnuvernd hjá öllum örfyrirtækjum og litlum fyrirtækjum - MSE - um alla Evrópu. Verkefnið var boðið út til hóps vísindamanna sem mynda „SESAME“ samtökin (Safe Small and Micro Enterprises) og hafa samtökin þrjú megin markmið: (1) að renna stoðum undir raunsannar ráðleggingar að stefnumálum, (2) að auðkenna góða starfshætti á sviði stefnumála, stefnumörkunar og raunhæfra lausna til að bæta stjórn og framkvæmd vinnuverndarmála, og til að auðvelda þróun nýrra eða núverandi hagnýtra verkfæra, og (3) til að leggja fram upplýsingar fyrir framtíðar rannsóknir á því hverjir séu ákvarðandi og afgerandi þættir góðrar vinnuverndar.