Herferðin Heilbrigðir vinnustaðir hafa stjórn á hættulegum efnum 2018-19

Herferðin Heilbrigðir vinnustaðir hafa stjórn á hættulegum efnum 2018-19 stuðlar að aukinni vitund um hættuleg efni á vinnustöðum og veitir upplýsingar um hvernig á að koma í veg fyrir þær hættur sem tengjast þeim. Herferðinni er sérstaklega beint að starfsfólki með sérþarfir og markópum sem eru sérstaklega viðkvæmir fyrir hættunum, svo sem farandverkamönnum og ungmennum. Líkt og fyrri Vinnuvernd er allra hagur herferðir, þá er herferðin samræmd innanlands á grundvelli áhersluatriða Evrópsku vinnuverndarstofnunarinnar (EU-OSHA) og studd af opinberu herferðinni og samstarfsaðilum í fjölmiðlum.

Herferðin fór í gang í apríl 2018. Lykildagsetningar í dagatali herferðarinnar eru m.a. Evrópsku vinnuverndarvikurnar (október 2018 og 2019) og Verðlaunaathafnir fyrir kvikmyndir um heilbrigði á vinnustöðum (nóvember 2018 og 2019). Herferðinni lýkur með Fundinum um heilbrigði á vinnustöðum (e. Healthy workplaces summit) (nóvember 2019), þar sem allir þeir sem hafa lagt eitthvað að mörkum vegna herferðarinnar munu hittast ásamt Evrópsku vinnuverndarstofnuninni (EU-OSHA) til að fara yfir þann árangur sem náðst hefur í herferðinni og þann lærdóm sem draga má af henni.