Kvikmyndaverðlaun herferðarinnar Vinnuvernd er allra hagur (HWFA)

Kvikmyndaverðlaun herferðarinnar Vinnuvernd er allra hagur (HWFA) voru stofnuð af EU-OSHA árið 2009 til að verðlauna bestu heimildarmyndina um málefni sem varða vinnu. Leikstjóri vinningsmyndarinnar fær 5.000 evrur í verðlaunafé. Myndin er textuð á mörg ESB tungumál og sýnd í gegnum net EU-OSHA og opinbera samstarfsaðila um alla Evrópu. HWFA er kynnt sem flokkur innan Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar DocLisboa.