Herferðin Vinnuvernd er allra hagur 2020-2022

Herferð Vinnuvernd er allra hagur Vinnuvernd er allra hagur — Hæfilegt álag - Heilbrigt stoðkerfi, miðar að því að vekja athygli á vinnutengdum stoðkerfisvandamálum og miðla upplýsingum um hvernig hægt er að koma í veg fyrir og stjórna þeim. Herferðin er samræmd á landsvísu af tengiliðaneti EU-OSHA og stutt af opinberum samstarfsaðilum herferðarinnar, samstarfsaðilum í fjölmiðlasamstarfi ásamt Evrópska fyrirtækjanetinu. Herferðin hefur sex meginmarkmið:

  • Að vekja athygli á mikilvægi þess að koma í veg fyrir stoðkerfisvandamál með því að leggja fram staðreyndir og tölur um útsetningu fyrir stoðkerfisvandamálum og áhrif þeirra á einstaklinga, fyrirtæki og samfélag;
  • Að stuðla að áhættumati og fyrirbyggjandi stjórnun stoðkerfisvandamála með því að veita aðgang að viðeigandi verkfærum, leiðbeiningum, sem og hljóð- og myndefni ásamt öðru stuðningsefni;
  • Að sýna fram á að stoðkerfisvandamál séu mál sem öllum koma við, en hægt sé að takast á við þau;
  • Að bæta þekkingu á nýjum og upprennandi áhættuþáttum stoðkerfisvandamála;
  • Að stuðla að mikilvægi þess að styðja við bakið á starfsmönnum með langvarandi stoðkerfisvandamál í viðleitni þeirra að komast aftur til vinnu og vera áfram á vinnustað og eins að sýna fram á hvernig hægt sé að ná þessu marki;
  • Að hvetja til skilvirks samstarfs með því að leiða ólíka hagsmunaaðila saman og auðvelda upplýsingaskipti og góða starfshætti.