Herferðin Vinnuvernd er allra hagur 2018-2019 - áhættumat efna á vinnustað, miðar að því að auka vitund um hættuleg efni á vinnustað og miðla upplýsingum um hvernig hægt sé að koma í veg fyrir váhrif. Herferðin er samræmd á landsvísu af tengiliðaneti EU-OSHA og stutt af opinberum samstarfsaðilum herferðarinnar, samstarfsaðilum í fjölmiðlasamstarfi ásamt Evrópska fyrirtækjanetinu. Herferðin hefur fimm meginmarkmið:
- Að auka vitund um mikilvægi stjórnunar hættulegra efna á evrópskum vinnustöðum.
- Að stuðla að áhættumati, brotthvarfi og útskipti með því að leggja til verkfæri og dæmi um góða starfshætti.
- Að vekja athygli á áhættunni af völdum krabbameinsvaldandi efna með því að skiptast á upplýsingum um góðum starfsvenjur.
- Að ná til tiltekna hópa starfsmanna sem eru í meiri hættu með því að veita þeim sérsniðnar upplýsingar og tölur sem og leiðbeiningar um góða starfshætti.
- Að auka meðvitund á þróun í stefnumótun og löggjöf, með því að veita yfirlit á einföldu tungumáli varaðandi löggjöf og leiðbeiningar.
Eftir að herferðin hefur verið hleypt af stokkunum þann 24. apríl 2018, munu helstu viðburðir herferðarinnar m.a. vera Evrópu vikur um öryggi og heilsu í vinnunni (október 2018 og 2019) og verðlaunaafhending fyrir góða starfshætti og heilbrigða vinnustaði (apríl 2019). Herferðinni lýkur með verðlaunaafhendingu fyrir góða starfshætti og leiðtogafundi Vinnuvernd er allra hagur (báðir viðburðir í nóvember 2019). Viðburðirnir verða hýstir af EU-OSHA í Bilbao og veita þeim sem hafa tekið þátt í verkefninu tækifæri til að fagna árangri herferðarinnar og skoða það sem hefur áunnist.