Framsýnisverkefnið er flaggskip stofnunarinnar, en í því felst að leita út fyrir þær vinnustaðahættur sem nú eru „aðsteðjandi“, og reyna að átta sig á breytingum til lengri tíma litið. Verkefnið felur í sér þróun á svipmyndum fyrir ákveðin svið og kanna þannig hvað kunni að gerast ef ákveðnar tækniframfarir eða samfélagsbreytingar eiga sér stað og þau áhrif sem slíkar breytingar geta haft á vinnuvernd og hvernig stjórnvöld geta brugðist við. Fyrsta framsýnisverkefnið snýst um „græn“ störf; en þau snúast um tækni eða athafnir sem miða að því að draga úr umhverfisáhrifum.
Skýrsla þar sem bent er á lykilhvatana fyrir breytingum á sviðinu og önnur um helstu tækniatriði á sviðinu sem gætu haft áhrif á heilbrigði og öryggi á vinnustöðum, voru birtar árið 2011