Önnur Fyrirtækjakönnun Evrópu um nýjar og aðsteðjandi áhættur (ESENER-2) á vegum Vinnuverndarstofnunar Evrópu (EU-OSHA) safnaði svörum frá næstum því 50.000 fyrritækjum um vinnuverndarstjórnun og áhættur á vinnustaðnum þar sem sérstök áhersla var lögð á starfsmannaþátttöku og sálfélagslegar áhættur.
Þó að upplýsingar um vinnutengd slys og vanheilsu hafi verið í boði í gegnum starfsmannakannanir og tilkynningarkerfi að þá er lítið vitað um hvernig áhættum gegn heilbrigði og öryggi er stjórnað í reynd — einkum þeim áhættum sem eru nýjar og aðsteðjandi. Með því að skýra frá þörfum atvinnurekenda á stuðningi og sérfræðiþekkingu og bera kennsl á hvað geti hvatt til eða hindrað áhættuforvarnir að þá hjálpar ESENER við að fylla í þekkingargatið.
Fyrsta könnunin var gerð árið 2009. Vettvangsvinnan fyrir könnun númer tvö fór fram 2014. ESENER-2 kannaði bæði einka- og opinber fyrirtæki — í fjölbreyttum atvinnugreinum — í 36 löndum (28 aðildarríkjum ESB auk Albaníu, Íslandi, Svartfjallalandi, Fyrrum júgóslavneska lýðveldinu Makedóníu, Serbíu, Tyrklandi, Noregi og Sviss).
Í fyrsta skipti var landbúnaður og fiskveiðar auk örfyrirtækja með 5-10 starfsmönnum með í könnuninni. Spurningum var beint til þeirra sem þekktu vinnuverndarstjórnun með bestum hætti í fyrirtækinu. Svarendur svöruðu spurningum um helstu áhættuþætti í fyrirtækjum sínum og sögðu frá því hvernig og hvers vegna þeir stjórna þeim ásamt því að tilgreina hindranir þegar kemur að forvörnum.