Normal
0
false
false
false
ES
ZH-CN
X-NONE
/* Style Definitions */
table.MsoNormalTable
{mso-style-name:"Table Normal";
mso-tstyle-rowband-size:0;
mso-tstyle-colband-size:0;
mso-style-noshow:yes;
mso-style-priority:99;
mso-style-parent:"";
mso-padding-alt:0cm 5.4pt 0cm 5.4pt;
mso-para-margin:0cm;
mso-para-margin-bottom:.0001pt;
mso-pagination:widow-orphan;
font-size:11.0pt;
font-family:"Calibri",sans-serif;
mso-ansi-language:ES;
mso-fareast-language:ES;}
Þó að upplýsingar um vinnutengd slys og vanheilsu hafi verið í boði í gegnum starfsmannakannanir og tilkynningarkerfi að þá er lítið vitað um hvernig áhættum gegn heilbrigði og öryggi er stjórnað í reynd. Með því að skýra frá þörfum atvinnurekenda á stuðningi og sérfræðiþekkingu og bera kennsl á hvað geti hvatt til eða hindrað áhættuforvarnir að þá hjálpar Fyrirtækjakönnun EU-OSHA í fyrirtækjum, ESENER, við að fylla í þekkingargatið. Fyrsta útgáfa könnunarinnar fór fram árið 2009.
Önnur útgáfa safnaði svörum frá nærri því 50.000 fyrirtækjum um vinnuverndarstjórnun og áhættur á vinnustöðum en sérstök áhersla var lögð á þátttöku starfsmanna og sálfélagslegar áhættur. Upplýsingar úr könnuninni eru í boði í gegnum stjórnborð á Netinu.
Vettvangsvinna fyrir nýju könnunina fór fram árið 2014 og náði bæði til fyrirtækja í opinbera og einkageiranum í ESB-28 svo og í Albaníu, á Íslandi, í Svartfjallalandi, fyrrum júgóslavneska lýðveldinu Makedóníu, Serbíu, Tyrklandi, Noregi og Sviss. Í fyrsta skipti var landbúnaður og fiskveiðar auk örfyrirtækja með 5-10 starfsmönnum með í könnuninni. Spurningum var beint til þeirra sem þekktu vinnuverndarstjórnun með bestum hætti í fyrirtækinu. Svarendur svöruðu spurningum um helstu áhættuþætti í fyrirtækjum sínum og sögðu frá því hvernig og hvers vegna þeir stjórna þeim ásamt því að tilgreina hindranir þegar kemur að forvörnum.
Ítarlegt yfirlit yfir skýrsluna verður í boði á ensku á fjórða ársfjórðungi 2015. Í lok árs 2015 og árið 2016 mun EU-OSHA með aðstoð landsskrifstofa sinna halda málstofur í aðildarríkjunum til þess að kynna niðurstöður ESENER-2 og aðra innlenda tölfræði.