ESENER 2

Önnur fyrirtækjakönnun Evrópu um nýjar og aðsteðjandi áhættur (ESENER-2) á vegum Vinnuverndarstofnunar Evrópu (EU-OSHA) safnaði svörum frá næstum því 50.000 fyrirtækjum um vinnuverndarstjórnun og áhættur á vinnustaðnum þar sem sérstök áhersla var lögð á starfsmannaþátttöku og sálfélagslegar áhættur.

Í fyrsta skipti var landbúnaður og fiskveiðar auk örfyrirtækja með 5-10 starfsmönnum með í könnuninni. Spurningum var beint til þeirra sem þekktu best til vinnuverndarstjórnunar í fyrirtækinu. Svarendur svöruðu spurningum um helstu áhættuþætti í fyrirtækjum sínum og sögðu frá því hvernig og hvers vegna þeir stjórna þeim ásamt því að tilgreina hindranir þegar kemur að forvörnum.

Skýrslan Þátttaka starfsfólks í stjórnun vinnuverndar: Gæðaniðurstöður úr annarri útgáfu fyrirtækjakönnunar Evrópu um nýjar og aðsteðjandi hættu (ESENER-2) fjallar um niðurstöður gæðarannsóknar á þátttöku launþega innan ESB í vinnuverndarmálum, en skýrslan er framhald af ESENER-2 skýrslunni.

Rannsóknin skoðar sérstaklega fyrirsvar starfsfólks í vinnuverndarmálum frá sjónarhóli starfsmannafulltrúa, samstarfsfólks þeirra og vinnuveitenda og stjórnenda. Hún byggir á ítarlegum viðtölum við þátttakendur frá 143 mismunandi fyrirtækjum í sjö aðildarríkjum ESB: Belgíu, Bretlandi, Eistlandi, Grikklandi, Hollandi, Spáni og Svíþjóð.

Stór hluti þessara fyrirtækja var tekinn fyrir í ESENER-2 könnuninni. Þau skiptast jafnt á milli þriggja megingeira (einkarekni framleiðslugeirinn, opinberi geirinn og einkarekni þjónustugeirinn) og þriggja stærðarflokka (lítil, miðlungsstór og stór). Könnunin inniheldur einnig fræðilega samantekt og viðtöl við heimildarmenn hjá helstu fyrirtækjunum, auk ítarlegrar magngreiningar á viðeigandi gögnum ESENER-2.