DOK Leipzig almennt

DOK Leipzig er elsta hátíðin fyrir heimildamyndir í heiminum. Á hátíðinni eru sýndar heimildarmyndir, teiknimyndir auk gagnvirkrar frásagnagerðar. Meðal dagskrárefna eru alþjóðlegar samkeppnir fyrir langar og stuttar heimildar- og teiknimyndir, sem og aðrar samkeppnir og sérstök atriði (þetta ár, til dæmis, var sýnd röð mynda frá Tyrklandi). Frá því að hátíðin hófst árið 1955, hefur DOK Leipzig þróast í það að vera alþjóðleg miðstöð fyrir heimildar- og teiknimyndir.