Kvikmyndaverðlaun herferðarinnar Vinnuvernd er allra hagur eru veitt fyrir heimildarmyndir sem fjalla um vinnutengd efni og eru hluti herferðirnar Vinnuvernd er allra hagur sem EU-OSHA heldur um alla Evrópu. EU-OSHA veitir verðlaunin árlega á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Leipzig fyrir heimildar- og teiknimyndir (DOK Leipzig) sem haldin er á þessu ári frá 30. október til 5. nóvember 2017.
DOK Leipzig er ein þýðingarmesta hátíðin fyrir heimilda- og teiknimyndir í heiminum, og þetta ár fagnar hátíðin 60 ára afmæli. Hátíðin hefur veitt kvikmyndaverðlaun herferðarinnar Vinnuvernd er allra hagur frá árinu 2009.