EU-OSHA skipuleggur vinnuverndarviðburði á sviði viðmiðana og miðlun á góðum starfsvenjum með opinberum samstarfsaðilum sínum á tveggja ára fresti í tengslum við herferðina Vinnuvernd er allra hagur. Viðmiðanaverkefnið er lykilþáttur fyrir EU-OSHA til þess að sýna aukið gildi þess að miðla góðum starfsvenjum og betri vinnuverndarstjórnun á vinnustöðum í Evrópu. Markmið viðburðarins er að gera fyrirtækjum kleift að koma saman og miðla reynslu sinni af góðum starfsvenjum á sviði vinnuverndar, einkum varðandi hvað megi læra af slysum og öðrum atvikum svo og skilvirkrar þjálfunar starfsmanna í tilkynningum á hættum, einkenna góðrar frammistöðu í vinnuverndarmálum, forystuþjálfunar og vinnuverndarreglugerða.
Opinberir samstarfsaðilar herferðarinnar skipuleggja einnig viðmiðanaviðburði í eigin húsnæði þar sem þeir bjóða aðra samstarfsaðila velkomna til þess að miðla góðum starfsháttum eins og sjá mátti á fundum ETPIS í Berlín, Heineken í Amsterdam, LEGO í Danmörku og Toyota í Svíþjóð á síðasta ári.