Reglugerð Evrópusambandsins um flokkun, merkingar og umbúðir (CLP) breytti með hvaða hætti upplýsingum um skaðsemi kemískra efna er miðlað. Myndtáknin, sem vísa til skaðsemi gegn heilbrigði og líkama hafa breyst, auk þess sem ný hafa verið kynnt til sögunnar. Einnig hafa verið gerðar nokkrar breytingar á flokkun og merkingum. Innleiða þarf reglurnar smám saman í öllum aðildarríkjum ESB. Frekari upplýsingar má finna á vefsíðu EU-OSHA um CLP og CLP síðu Efnastofnunar Evrópu (ECHA).