About DOK Leipzig

Kvikmyndaverðlaun herferðarinnar Vinnuvernd er allra hagur verðlaunar bestu heimildarmyndina um vinnutengd efni. EU-OSHA veitir verðlaunin á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Leipzig fyrir heimildar- og teiknimyndir (DOK Leipzig).

Auk 8,000 evra verðlaunafjár, verða 1,000 eintök af verðlaunamyndinni framleidd á 8 völdum tungumálum Evrópusambandsins og dreift um Evrópu af EU-OSHA. 
Árið 2011 féllu verðlaunin í skaut þýska leikstjórans Carmen Losmann fyrir kvikmynd hennar Work Hard Play Hard, könnun á nútímakenningum um vinnuskipulag og stjórnun. Verðlaunahafinn 2010 var tékkneski leikstjórinn Tomas Kudrna fyrir kvikmynd hans All that Glitters en hún fjallar um vinnuaðstæður í gullnámu í Kirgistan. Fyrstu verðlaunin árið 2009 hreppti hollenski leikstjórinn Ton Van Zantvoort fyrir A Blooming Business sem sýnir sársaukafullar vinnuaðstæður í hnattrænum blómaiðnaði.