Samráð við almenning er nú í gangi um stefnuramma ESB um vinnuvernd (2021-2027)

designed by Freepik
COVID-19 faraldurinn hefur undirstrikað mikilvægi heilbrigðis, þar á meðal heilbrigðis og öryggis á vinnustöðum. Þetta verkefni byggir á fyrri stefnuramma ESB 2014-2020. Markmið þess er að viðhalda og bæta góða staðla á sviði heilbrigðis og öryggis fyrir starfsmenn í ESB - einnig í ljósi nýrra kringumstæðna og hjálpa til við undirbúning undir nýjar vár og ógnir. Þar verður fjallað um helstu markmið og stefnuramma til að hvetja lönd ESB og hagsmunaaðila til að vinna saman að sameiginlegum forgangsatriðum.
Þú hefur fram til 1. mars til að segja skoðun þína á framtíðarstefnuramma ESB um vinnuvernd (2021-2027).
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins mun kynna nýjan stefnuramma fyrir vinnuvernd í vinnuáætlun sinni fyrir árið 2021, A Union of vitality in a world of fragility.
Frekari upplýsingar um samráð við almenning og svör við spurningalistanum




