Fréttatilkynningar
FYRIR TAFARLAUSA BIRTINGU - 25/05/2018 - 01:30

Hvernig er best að styðja afturhvarf fólks sem lifir af krabbamein til vinnu?

Til að marka Evrópuviku gegn krabbameini, 25.-31. maí 2018, birti Evrópska vinnuverndarstofnunin (EU-OSHA) nýlegar niðurstöður frá verkefni hennar sem skoðar áhrif krabbameins fyrir starfsfólk og vinnustaði um alla Evrópu. Útgáfan einangrar verkfæri, verkferla, stefnur og inngrip sem geta stuðlað að árangursríkri endurhæfingu og afturhvarfi-til-vinnu fyrir fólk sem lifir af krabbamein.

Auk skaðlegra áhrifa sem atvinnuleysi hefur á velferð og fjárhag einstaklingsins, hefur þetta ástand alvarlegar efnahagslegar afleiðingar fyrir fyrirtæki og samfélagið í heild.

Í Evrópu greinast um 1,4 milljónir vinnandi fólks í Evrópu með krabbamein á hverju ári. Þrátt fyrir að margt af þessu fólki haldi áfram að vinna, er meðalhlutfall afturhvarfs til vinnu aðeins 64% eftir 18 mánuði, og þau sem lifa af krabbamein eru 1,4 sinnum líklegri til að vera atvinnulaus og þrisvar sinnum líklegri til að fá örorkubætur.

„Auk skaðlegra áhrifa sem atvinnuleysi hefur á velferð og fjárhag einstaklingsins, hefur þetta ástand alvarlegar efnahagslegar afleiðingar fyrir fyrirtæki og samfélagið í heild,“ segir framkvæmdastjóri EU-OSHA, Christa Sedlatschek. „Raunar eru vinnudagar á árinu 2009 sem töpuðust vegna krabbameins taldir hafa kostað Evrópusambandið 9,5 milljarða evra. Þess vegna er nauðsynlegt að fyrirtæki innleiði skilvirk úrræði til að hjálpa starfsfólki sínu að snúa til baka til vinnu eftir að hafa verið greint með krabbamein.

Í gegnum verkefnið „Endurhæfing og afturhvarf til vinnu eftir krabbamein — verkfæri og-ferlar,“ ætlar EU-OSHA að auka vitund um vandamálin sem launþegar sem hafa verið greindir með krabbamein standa frammi fyrir og þróa leiðarvísi fyrir atvinnuveitendur um hvernig hægt er að styðja þá við afturhvarf til vinnu.

Þeir sem lifa af krabbamein upplifa oft sálfræðileg vandamál eins og þunglyndi og kvíða, auk líkamlegra vandamála, sérstaklega þreytu. Þessi heilsufarsvandamál geta dregið úr getu þeirra til vinnu og gætu tengst neikvæðum viðhorfum starfsfélaga. Vísindalegar rannsóknir gefa til kynna að fjölfagleg inngrip sem fela, til dæmis, í sér samsetningu líkamleg og starfsleg endurhæfingarúrræði og ráðgjöf geti aðstoðað við að koma starfsfólki aftur til vinnu.

Dæmi um góðar starfsvenjur

Sem hluta af verkefninu voru sjö dæmi um góðar starfsvenjur frá fimm ESB-löndum einangruð og greind til hlítar. Þau sýna ýmiskonar nálgun við að hjálpa fólki sem lifir af að snúa aftur til vinnu.

„Unnið í gegnum krabbamein“ áætlunin sem rekin er af Macmillan Cancer Support í Stóra-Bretlandi er dæmi um sérstaklega frumlegt inngrip. Þessi yfirgripsmikla áætlun býður upp á ýmiskonar hjálparefni — allt frá upplýsingum á netinu og netlærdóms einingar til innhringiaðstoðar og námskeiða innan fyrirtækis — sérsniðið að þörfum starfsfólks og fjölskyldna þeirra, atvinnuveitenda, mannauðsstjóra og heilbrigðisstarfsfólks. Eitt af markmiðum áætlunarinnar er að tryggja að atvinnuveitendur skilji ávinninginn af virkri aðstoð við starfsfólk til að hjálpa því að snúa aftur til vinnu eftir meðferð.

Þó nokkrar ráðleggingar eru gefnar á grunni árangursþátta sem einangraðir voru í þessu verkefni:

  • Löggjöf ætti að þróa þannig að öllum fyrirtækjum sé skylt að bjóða upp á afturhvarf-til-vinnu áætlanir fyrir starfsfólk, og veita ætti stuðning til þess, sérstaklega fyrir SME.
  • Snemmbúin framkvæmd og góð samskipti á milli allra viðkomandi hagsmunaaðila er nauðsynlegt fyrir skilvirkar afturhvarf-til-vinnu íhlutanir og áætlanir ættu að vera sérsniðnar að þörfum starfsfólks.
  • Afturhvarf-til-vinnu áætlanir ættu að vera samþættar stefnum fyrirtækisins, og veita ætti nægum tíma og auðlindum í að gefa upplýsingar um krabbamein og afturhvarf til vinnu.
  • Reyna ætti að stuðla að jákvæðu viðhorfi á vinnustaðnum til fólks sem kemur aftur til vinnu eftir krabbamein.

Tenglar:

Athugasemdir til ritstjóra: 
1.

Evrópuvika gegn krabbameini er árleg herferð sem er í gangi frá 25. til 31. maí undir forystu Samtaka evrópskra krabbameinssambanda. Markmið hennar er vitundarvakning um forvarnir gegn krabbameini, aðgang að meðferð og stuðning fyrir eftirlifendur.

2.

Vinnuverndarstofnun Evrópu (EU-OSHA) leggur sitt af mörkunum við að gera Evrópu að öruggari, heilbrigðari og afkastameiri stað til að vinna á. Stofnunin rannsakar, þróar og dreifir áreiðanlegum, yfirveguðum og óhlutdrægum upplýsingum um öryggis- og heilbrigðismál og skipuleggur vitundarherferðir um alla Evrópu. Stofnunin, sem var sett á fót af Evrópusambandinu árið 1994 og er með höfuðstöðvar í Bilbaó á Spáni, færir saman fulltrúa framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, fulltrúa frá stjórnsýslu aðildarríkjanna, frá samtökum atvinnurekenda og launþega ásamt leiðandi sérfræðingum frá hverju af hinum aðildarríkjum ESB og annars staðar frá.

Nú geturðu fylgt okkur á Facebook, Twitter, LinkedIn, YouTube eða gerst áskrifandi að mánaðarlegu fréttabréfi okkar OSHmail. Þú getur líka skráð þig fyrir reglulegum fréttum og upplýsingum frá EU-OSHA í RSS-veitu okkar.

http://osha.europa.eu