Hvers vegna viðhaldsvinna er mikilvæg

Án viðeigandi viðhaldsvinnu getur margt farið afskaplega illa á vinnustað

Regluleg viðhaldsvinna er nauðsynleg til að halda búnaði, vélum og vinnuumhverfinu öruggu og traustu. Það hjálpar til við að koma í veg fyrir slysahættur á vinnustað. Skortur á viðhaldsvinnu eða ófullnægjandi viðhaldsvinna getur leitt til hættulegra aðstæðna, slysa og heilsuvandamála.

Viðhaldsvinna er áhættusöm iðja. Hún þarf að vera framkvæmd með öruggum hætti!

Viðhaldsvinna öryggisins vegna

Fullnægjandi viðhaldsvinna er nauðsynleg til að koma í veg fyrir hættur og til að hafa stjórn á áhættum á vinnustaðnum. Skortur á viðhaldsvinnu eða ófullnægjandi viðhaldsvinnu getur valdið alvarlegum og lífshættulegum slysum.

Nánari upplýsingar um þann þátt sem tileinkaður er viðhaldsvinnu er að finna á heimasíðu EU-OSHA

Language

 

Evrópsk herferð fyrir öruggt viðhald

Back to top